Af hverju Framsókn?

Af hverju ætti fólk eiginlega að kjósa Framsóknarflokkinn? Flokkurinn hefur tvo möguleika á að komast í ríkisstjórn, annars vegar í vinstri stjórn með VG og Samfylkingu og hins vegar í stjórn með Sjálfstæðisflokknum.

Ef fólk vill vinstri stjórn, er lang rökréttast að kjósa VG eða Samfylkingu. Þriggja flokka stjórn VG, Samfylkingar og Framsóknar er miklu ólíklegri til að halda út en tveggja flokka stjórn VG og Samfylkingar.

Ef fólk vill hins vegar stjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks þá er sjálfsagt að kjósa B. Ég get hins vegar ekki ímyndað mér að fólkið í landinu vilji sjá þá stjórn aftur, eftir 12 ára stjórnarsamstarf þeirra sem á stóran þátt að hafa komið okkur í þá stöðu sem við erum í núna.


mbl.is Vill vera í vinstri stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dexter Morgan

Sæll grunnskólakennari.

Samkvæmt grafi á vef RUV getur Framsókn ekki farið í meirihluta sem Sjálfs.fl. (sem betur fer, og þar er ég sammála þér). Þeir eru bara með 41,6% samanlagt, en VG og SF eru með 53,4%... Gott að ég á ekki barn í Smáraskóla

Dexter Morgan, 5.3.2009 kl. 22:49

2 Smámynd: Smári Jökull Jónsson

Sæll Dexter !

Ég kann vel að leggja saman og vissi þar af leiðandi að samkvæmt þessari könnun geta B og D ekki myndað stjórn, þannig að áhyggjur þínar af börnum í Smáraskóla eru óþarfar

Það er hins vegar alveg mögulegt að ríkisstjórn B og D komi til greina í lok apríl, bæði því tölurnar gætu breyst og einnig því ég held að það sé eitthvað sem Sjálfstæðisflokkurinn myndi sækjast sérstaklega eftir og Framsókn væri til í(sérstaklega ef það myndi færa Framsókn völd, valdagræðgin var nefnilega fundin upp í þeim flokki) og það var einfaldlega það sem ég átti við.

Aðrir möguleikar á ríkisstjórn með Framsókn innanborðs heldur en B og D eða B, S og VG eru hins vegar ekki til staðar, eða allavega mjög ólíklegri að mínu mati.

Smári Jökull Jónsson, 5.3.2009 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Smári Jökull Jónsson

Höfundur

Smári Jökull Jónsson
Smári Jökull Jónsson

Starfa sem grunnskólakennari í Smáraskóla í Kópavogi auk þess að skrifa um íþróttir í Fréttablaðið af og til.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Myndir heima   Vikur 4 6 153
  • Fyrsti sólarhringur 114
  • Fyrsti sólarhringur 122
  • Fyrsti sólarhringur 095
  • Fyrsti sólarhringur 083

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 702

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband