Bensínið ?

Þar sem olíutunnan hefur lækkað um rúm 400% (ef reikningskunnátta mín svíkur mig ekki) þá fyndist manni ekki óeðlilegt að bensínið hér á landi myndi lækka eitthvað líka - þó að væri nú ekki nema fyrir hluta þeirrar tölu.

Það virðist hins vegar alltaf taka lengri tíma að líta til þróunar heimsmarkaðsverðs, þegar verðið á olíunni er að lækka en þegar það er að hækka. Merkilegt nokk...

Smá leiðrétting. Þar sem í ljós kom að reikningskunnáttan mín sveik mig, þá er komin ágætis útskýring í kommentum á stærðfræðinni hvað varðar hækkun/lækkun olíunnar Smile


mbl.is Olían í 10 dali?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geir Guðbrandsson

Ekki veit ég hver kenndi þér stærðfræðina sem þú beitir þarna, en ef olían hefði lækkað um 400% úr einhverju verði myndi það gefa okkur að nú væri borguð þrefalt fyrra verð olíunnar með hverri tunnu.

Þú hefur væntanlega fengið þessa niðurstöðu með eftirfarandi útreikningum:

      147/36=4

En réttara væri :

36/147=0,076 eða um það bil 0,08. Sem gefur að verð í dag er um 8% af hæsta verði eða hefur síðan 147 dala verði á tunnu var náð lækkað um nær 92%. 

Geir Guðbrandsson, 19.1.2009 kl. 09:40

2 identicon

Mér sýnist eitthvað hafa skolast til hjá þér Geir,

36/147 = 0,2448 sem þýðir að fatið er 24,48% virði af hæsta skráða verði og hefur því lækkað um 75% eða ca. usd 110.   Á hinn veginn ef olían myndi hækka aftur í fyrri hæðir myndi hún stökkva upp um 400%.

kv. ek

Einar Karlsson (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 10:03

3 Smámynd: Smári Jökull Jónsson

Ok gott og vel, mín mistök - ef hún myndi hækka aftur upp í 147 dollara þá væri hún búin að hækka um 400%

Ég ætla svo að láta ykkur um afganginn - sýnist þið mun fróðari en ég í þessum fræðum !

Smári Jökull Jónsson, 19.1.2009 kl. 12:10

4 identicon

Smári, ekkert að afsaka. Ég sá mig frekar tilneyddan að lagfæra misfærslur Geirs, reyndar er hann einnig með misskilning á lækkun um 400%, því ekkert er lengur neins virði þegar það er lækkað um 100%, hvað þá 400%.

Það væri þá greitt með olíunni ef hún væri orðin  -100 usd, það væri nú kostur að fá greitt með fatinu.

kv.ek

Einar Karlsson (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 13:08

5 identicon

Er þá málið komið á hreint?:D

Hjálmar (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 13:50

6 Smámynd: Smári Jökull Jónsson

Já mér sýnist það. Ég allavega er með það á hreinu núna að olían hefur lækkað um 75% síðan hún var hæst, ef hún myndi hækka aftur í sama verð myndi hún hækka um 400% og svo veit ég það líka núna að ekkert getur lækkað um 400% (hefði nú líklega átt að vita það)

En takk fyrir útskýringarnar Einar - og þú líka Geir, þó svo að þær hafi eitthvað ruglast hjá þér...

Smári Jökull Jónsson, 20.1.2009 kl. 00:22

7 Smámynd: Smári Jökull Jónsson

Það sem við vitum ekki hins vegar, er hver kenndi Geir stærðfræðina sem hann beitti - líkt og hann spurði hver kenndi mér stærðfræðina sem ég beitti ! Það var allavega Gísli Óskarsson sem kenndi mér, en líklega væri hann ekki ánægður með útskýringarnar mínar ef hann sæi þér hér á "prenti"

Smári Jökull Jónsson, 20.1.2009 kl. 00:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Smári Jökull Jónsson

Höfundur

Smári Jökull Jónsson
Smári Jökull Jónsson

Starfa sem grunnskólakennari í Smáraskóla í Kópavogi auk þess að skrifa um íþróttir í Fréttablaðið af og til.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Myndir heima   Vikur 4 6 153
  • Fyrsti sólarhringur 114
  • Fyrsti sólarhringur 122
  • Fyrsti sólarhringur 095
  • Fyrsti sólarhringur 083

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 14
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 730

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband