Ríkisstjórnin og umönnunarstéttir

Það hefur í fjölda ára verið vandamál á Íslandi að menn bera ekki nægilega virðingu fyrir umönnunarstéttum á Íslandi. Endurspeglast það meðal annars í launum fólks í umönnunarstörfum. Kennarar, hjúkrunarfræðingar, ljósmæður, sjúkraliðar o.s.frv. Í mörgum öðrum löndum er einmitt lögð áhersla á að halda sérfræðifólki í þessum störfum og menn þar gera sér grein fyrir því að besta leiðin til þess er að hafa launin almennileg. Menn hafa ekki ennþá áttað sig á því.

Ég kenni í brjósti um þær konur sem þurfa á þjónustu ljósmæðra að halda á meðan á verkfalli stendur og fá hana ekki. En ég áfellist ekki ljósmæðurnar. Ég styð þær heilshugar og vona að þær fái sínu framgengt og það sem fyrst !

Svo gæti ég skrifað heila tímaritsgrein um virðingu sums fólks fyrir kennarastéttinni, fylgist spennt með !


mbl.is Stefnir í verkfall ljósmæðra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Falla kennarar undir umönnunarstörf?;)

Hjálmar (IP-tala skráð) 2.9.2008 kl. 09:12

2 Smámynd: Andri Ólafsson

Hjalli, þú ert umönnunarstarf

Andri Ólafsson, 2.9.2008 kl. 12:48

3 Smámynd: Smári Jökull Jónsson

Já, er það ekki ? Við erum að annast unga fólkið, þannig að ég myndi nú telja kennarastarfið umönnunarstarf...

Smári Jökull Jónsson, 2.9.2008 kl. 15:52

4 identicon

Það telst amk til uppeldisstarfa og það er oft talað saman um uppeldis- og umönnunarstörf..og þá sérstaklega í launaumræðum :)

Sigrún Þöll (IP-tala skráð) 2.9.2008 kl. 16:40

5 identicon

Andri, vantar þig vinnu

En engin leiðindi hérna, hef aldrei heyrt að kennarar falli undir umönnunarstörf. En ætla ekki að draga orð ykkar í efa Þetta er auðvitað bara skilgreiningaratriði og skiptir kannski ekki öllu...

 En já mér finnst lágmarkskrafa að þessi umtöluðu störf, eða bara öll störf hjá ríkinu (þá kannski sérstaklega sérfræðistörf) að þau séu það vel borguð að það er a.m.k vottur af áhuga hjá fólki að sækja um og fá hæft starfsfólk í þessi störf!

Ætla annars ekki að fara út í samkeppnihæfa launa umræðu, eflaust hægt að fara neðar í stigann en þessi störf...

Hjálmar (IP-tala skráð) 2.9.2008 kl. 22:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Smári Jökull Jónsson

Höfundur

Smári Jökull Jónsson
Smári Jökull Jónsson

Starfa sem grunnskólakennari í Smáraskóla í Kópavogi auk þess að skrifa um íþróttir í Fréttablaðið af og til.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Myndir heima   Vikur 4 6 153
  • Fyrsti sólarhringur 114
  • Fyrsti sólarhringur 122
  • Fyrsti sólarhringur 095
  • Fyrsti sólarhringur 083

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband