Loksins afdráttarlaus yfirlýsing !

Loksins, loksins segi ég nú bara. Mér finnst nokkuð ljóst á þessum orðum Ingibjargar Sólrúnar að hún muni segja skilið við Sjálfstæðisflokkinn ef þeir breyti ekki sinni stefnu um ESB og krónuna. Nú er hún búin að setja pressu á Geir Haarde og nú fáum við að sjá hvort hinn ákvarðanahræddi forsætisráðherra þorir að taka á þessu máli af festu.

Maður eða mús ?


mbl.is Ríkisstjórnin verður að svara kalli um breytingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Sammála, vonandi segir hann bara Ingibjörgu að eiga sig ;)

Hjörtur J. Guðmundsson, 13.12.2008 kl. 14:27

2 Smámynd: Smári Jökull Jónsson

Þá er hann mús

Smári Jökull Jónsson, 13.12.2008 kl. 14:45

3 Smámynd: Torfi Kristján Stefánsson

Nei, þá er hann auðvitað maður. Hann er mús ef hann lætur gribbuna kúga sig!

Torfi Kristján Stefánsson, 13.12.2008 kl. 14:47

4 identicon

Ég veit ekki hvort að það sé hægt að nefna hann maður eða mús hvað þetta varðar. Ég býst að flokksþingið muni ákvarða það hvort ESB sé málið eða ekki.

En það er svo annað mál hvort hann þori að setja sig upp á móti Davíð eða sjálfstæðismenn yfir höfuð:S

Að mínu mati þá hefur enginn (hvort það sé Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn eða einhver annar flokkur/fræðimenn) komið með útlistað hverjir eru kostir og hverjir eru gallar ESB!!

Svona vil ég hafa þetta: Þetta verður kannað til hlýtar, hvað felst í þessu hvað þurfum við að láta af hendi og hvaða kröfur þurfum við að uppfylla. Og að sjálfsögðu hvað fáum við í staðinn!!

Fara í aðildarviðræður og þá verður þetta skýrar það sem liggur á borðinu og í framhaldi af því förum við í þjóðaratkvæðagreiðslu. Að sjálfsögðu þarf þetta ferli að vera hlutlaust hjá öllum flokkum, fræðimönnum og almenningi í landinu.

Ég mun a.m.k ekki mynda mér skoðun á aðild að ESB fyrr en þetta liggur fyrir!

Að mínu mati finnst mér Samfylkingin of opin fyrir þessum möguleika, að ESB sé málið, án þess að hafa í rauninni fulla hugmynd um hvað málið snýst og það sem aðildin mun hafa í för með sér. Á móti fynst mér Sjálfstæðiflokkurinn of lokaður á umræðu fyrir þennan möguleika....

Hjálmar (IP-tala skráð) 13.12.2008 kl. 17:59

5 Smámynd: Smári Jökull Jónsson

Þetta er einmitt það sem Samfylkingin hefur talað um í mörg, mörg ár ! Að kanna kostina og gallana vel og fara svo í viðræður ef í ljós kemur að kostirnir eru fleiri en gallarnir. Það hefur hins vegar aldrei mátt ræða þetta ESB mál, fyrr en núna, og það er Sjálfstæðisflokkurinn sem hefur staðið í vegi fyri því.

Svo held ég að það sé fjarstæða að Samfylkingin hafi ekki fulla hugmynd um það hvað aðild að ESB þýðir. Ég held einmitt að þeir séu eini flokkurinn sem er búinn að athuga það og hafa myndað sér afstöðu.

Geir Haarde er maður en ekki mús ef hann þorir að standa upp núna og segist vilja aðildarviðræður, þó svo að stórir fiskar í tjörninni við Valhöll hafi talað gegn því.

Smári Jökull Jónsson, 13.12.2008 kl. 19:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Smári Jökull Jónsson

Höfundur

Smári Jökull Jónsson
Smári Jökull Jónsson

Starfa sem grunnskólakennari í Smáraskóla í Kópavogi auk þess að skrifa um íþróttir í Fréttablaðið af og til.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Myndir heima   Vikur 4 6 153
  • Fyrsti sólarhringur 114
  • Fyrsti sólarhringur 122
  • Fyrsti sólarhringur 095
  • Fyrsti sólarhringur 083

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 733

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband