28.12.2008 | 11:52
Sérstök skilaboð
Robbie Keane fær sérstök skilaboð frá Benitez eftir stórleikinn gegn Bolton. Settur á bekkinn eftir að hafa skorað tvö mörk og eftir að hafa skorað í fyrsta skipti tvo leiki í röð. Keane er nú varla sáttur með þetta og ég get ekki ímyndað mér að þetta geri mikið fyrir sjálfstraustið hjá honum.
Annars er gaman að sjá Martin Skrtel aftur í hópnum, hefði verið enn betra að sjá Torres líka.
Keane og Alonso á bekknum hjá Liverpool | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Smári Jökull Jónsson
Færsluflokkar
Tenglar
Mínar uppáhalds
Þær síður sem ég skoða daglega
- Fótbolti.net
- Mogginn
- Vísir
- Sky Sports Íþróttafréttir erlendis
- Eyjan
- Sky News Erlendu fréttirnar
- Eyjafréttir
- Herðubreið Pólitískur fréttavefur
- Smugan Pólitískur fréttavefur í boði Vinstri-Grænna
- Liverpool
- RÚV
- Eyjar.net
- ÍBV
- AMX Pólitískur fréttavefur í boði Sjálfstæðismanna
- Liverpool á Íslandi
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mér grunar að þetta sé frekar partur af því að minka álag á leikmenn yfir jólin. Allt liðið spilaði erfiðan leik fyrir 2 dögum síðan og hefur Kean spilað allar 90 mínúturnar undanfarið. En sammála, gott að sjá Skrtel í hópnum og vonandi bætist Torres í hann fyrir næsta leik.
Örvar (IP-tala skráð) 28.12.2008 kl. 12:08
En það er samt spurning, þó að Keane hafi spilað erfiðan leik í fyrradag, að leyfa þá honum allavega að byrja þar sem hann hefur ekki verið að skora í vetur, fyrr en núna.
En þetta kom að vísu ekki að sök, þar sem við unnum stórsigur !
Smári Jökull Jónsson, 28.12.2008 kl. 16:46
Hann var pottþétt bara búinn á því!
en góður leikur var þetta :)
sjáumst á morgun
Hjördís Yo (IP-tala skráð) 28.12.2008 kl. 18:14
Og nú er í fréttum að Gerrard sé að lemja mann og annan þarna á Bretlandi, ansi menn eru fljótir að þykjast vera merkilegri en aðrir þótt að liðið þeirra sé á toppnum yfir jól og áramót!!!
En að öllu gríni slepptu þá er jú vissulega skrýtið að Keane sé settur á bekkinn, hefði ekki verið hægt að hvíla hann þegar Torres kemur til baka?
En mér finnst vera að koma sami bragur á Liverpool og hefur verið síðustu ár undir tjórn Benitez! Þ.e að passa að tapa ekki leiknum s.br Arsenal leikurinn, manni fleirri og liggja undir pressu:S Siðan hvort að hann sé að fara að taka rikið af róteringakerfinu....
Hjálmar (IP-tala skráð) 29.12.2008 kl. 15:51
Ég er nú bara sæmilega sáttur við braginn á liðinu eins og er, 5-1 sigur á útivelli hlýtur að vera ágætis árangur. Ég held þú sért orðinn pínu smeykur Hjalli, þú ert farinn að sjá að það gæti gerst að Liverpook vinni deildina (sýnist ég sjá það á milli línanna)
Það er samt nokkuð ljóst að enginn hefur unnið titil í desember. Það hlýtur samt að vera ansi stór plús að vera efstur þegar nýja árið hefst og það þó svo að þú sért ekkert búinn að spila neitt frábærlega vel (sbr leiki gegn Stoke, Fulham og West Ham heima og svo sigurleiki gegn Portsmouth og Wigan). Það er einnig plús að vera búinn með Chelsea, Arsenal og Aston Villa á útivelli).
En ef Liverpool ætlar sér að vera efstir í lok tímabilsins, þá þurfa þeir að halda áfram að spila eins og þeir gerðu gegn Newcastle og það er nokkuð ljóst að lið eins og Chelsea og United verða nartandi í hælana, að bíða eftir að þeir misstígi sig. Sjáum til hvernig pressan fer með þau lið ef þau verða enn á eftir Liverpool í byrjun mars...
Smári Jökull Jónsson, 29.12.2008 kl. 19:52
Nei ég er nú svo sem ekkert smeykur, ekkert frekar en ég færi að fagna titlinum ef United væru efstir í dag með 10 stiga forskot. Kemur reyndar á óvart að Chelsea virðast eitthvað vera að misstíga sig meira en undandafin ár.
En ég vildi bara koma þessu að þar sem að mér finnst þetta hafa eitthvað verið að breytast í undanförnum leikjum fyrir utan Newcastle leikinn sem Liverpool átti að vinna 15-0 eða hvernig sem menn vilja hafa það! United hafa svo sem ekki verið að ná sér almennilega á flug og virðist sem að Sir Alex eigi í erfiðleikum með að finna réttu blönduna, ég hef samt trú á að hann finni hana mjg fljótlega!
En ef við gefum okkur það að United taki þessa tvo leiki sem þeir eiga inni (sem er auðvitað langt í frá gefið!) þá erum við 1 stigi á eftir Liverpool en búnir með útivelli eins og Anfield, Emirates, Stamford, White hart lane og hvað allir þessir leikvangar heita, Aston villa og fleirri! Einnig hafa síðustu leikir verið rosalegir þolinmæðisleikir svo kom heimsmeistar keppnin þarna inn í. Ég hefði allavega alveg tekið þessa stöðu fyrir mót ef mér hefði verið boðið það og ég held að Sir Alex séu sammála mér því;)
Hjálmar (IP-tala skráð) 30.12.2008 kl. 01:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.