8.1.2009 | 12:52
Þrettándinn
Fólk hér í bænum skilur ósköp lítið í því af hverju Þrettándinn er svona mikið mál hjá Vestmannaeyingum. Það er svosem ekki skrýtið, því það er lítið sem ekkert gert úr honum hér nema á einstaka stað.
Í Eyjum er þetta hins vegar einn af stóru þáttunum í hinu fjölbreytta mannlífi samfélagsins þar. Þá mæta jólasveinarnir ofan af fjöllum ásamt foreldrum sínum og hinum ýmsu furðuverum sem aðeins sjást einu sinni á ári - einmitt á Þrettándanum. Börn jafnt sem fullorðnir flykkjast á svæðið til að berja þessar fígurur augum, því þennan dag er í lagi þó fullorðnir ákveði að ganga aftur í barndóm.
Sumar fígúrurnar eru ógnvekjandi og eiga það til að stríða börnunum sem gráta þá hástöfum á meðan foreldrarnir horfa á hlæjandi, og hugsa um leið til baka hvernig þeim leið þegar þau voru 6 ára og Leppalúði var næstum búinn að grípa þau um borð í vagninn sinn. Þegar allt húllumhæið er búið halda flestir í veglegt Þrettándakaffi með vinum og ættingjum, þó ekki fyrr en búið er að horfa á glæsilega flugeldasýningu.
Ég persónulega er mjög hlynntur því að Þrettándinn sé færður á helgi til þess að auðveldara sé að markaðsetja hann meðal annarra en Vestmannaeyinga, eða þá einfaldlegat til að auðvelda brottfluttum Eyjamönnum að mæta á hátíðina. Það segir sig sjálft að ef fjölmennt er á Þrettándanum þá skapast meiri stemmning og allir skemmta sér vel.
Ég ætla allavega að mæta á morgun, skemmta mér konunglega og vona að sem flestir Eyjamenn, og gestir, geri það sömuleiðis !
Um bloggið
Smári Jökull Jónsson
Færsluflokkar
Tenglar
Mínar uppáhalds
Þær síður sem ég skoða daglega
- Fótbolti.net
- Mogginn
- Vísir
- Sky Sports Íþróttafréttir erlendis
- Eyjan
- Sky News Erlendu fréttirnar
- Eyjafréttir
- Herðubreið Pólitískur fréttavefur
- Smugan Pólitískur fréttavefur í boði Vinstri-Grænna
- Liverpool
- RÚV
- Eyjar.net
- ÍBV
- AMX Pólitískur fréttavefur í boði Sjálfstæðismanna
- Liverpool á Íslandi
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.