Færsluflokkur: Bloggar

Hver vill það ekki ?

Það eru örugglega ekkert margir karlmenn sem myndu slá hendinni á móti því að fá að taka mynd af Jessicu Alba á Evuklæðunum...
mbl.is Vilja mynda Jessicu Alba nakta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ææææiii hvernig er hægt að haga sér svona

Þetta náttúrulega nær engri átt. Þorsteinn kallinn á eflaust eftir að standa sig ágætlega í þessu starfi en maður veltir fyrir sér af hverju í ósköpunum er verið að óska eftir áliti nefndar á hæfi einstaklinga, ef löngu er búið að ákveða að ekki verður farið eftir því áliti. Nefndarmenn, sem eiga að vera sérfræðingar í þessu máli, töldu að þrír umsækjendur væru hæfari en umræddur Þorsteinn en samt velur hæstvirtur fjármálaráðherra hann í starfið.

Hver ætlar að reyna að segja mér það að það skipti ENGU máli að hann er sonur Davíðs Oddssonar ? Mín skoðun er sú að það er ástæðan fyrir því að hann fékk starfið, burtséð frá því hversu hæfur hann er.

Ég vona að það eigi eitthvað eftir að heyrast í mínu fólki í ríkisstjórn varðandi þetta mál, þetta vinnulag Sjálfstæðismanna er auðvitað verulega ámælisvert.


mbl.is Þorsteinn Davíðsson skipaður héraðsdómari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott mál

Gott mál að hún sé valin best, enda er hún best þannig að annað hefði verið hneysa. Hemmi svo valinn bestur hjá körlunum þannig að það má segja að Eyjamenn hafi verið sigurvegarar kvöldsins því bæði eru þau jú fædd og uppalin á Paradísareyjunni í suðri.

Það er því mjög sorglegt að hugsa til þess að meistaraflokkslið karla og kvenna hjá ÍBV í knattspyrnu séu bæði í næst efstu deild.

En til hamingju Marco ! Smile


mbl.is Margrét Lára knattspyrnukona ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólahlaðborð

Fer á jólahlaðborð í kvöld með vinnunni. Ferðinni heitið á Pottinn og pönnuna og maður fékk vatn í munninn þegar maður heyrði hvað verður á boðstólum !

Ódýrt

Félagi minn Kjartan Vídó skrifar grein inn á eyjar.net í dag þar sem hin alvarlega staða í samgöngumálum Vestmannaeyja er rædd. Þar spyr hann núverandi samgönguráðherra Kristján Möller hvort hann sé virkilega stoltur af stöðunni eins og hún er núna.

Það efast ég um. Mér finnst þetta jafnframt ódýrt að koma vandamálinu yfir á Kristján því hann hefur nú eingöngu verið í ráðherrastólnum í 6 mánuði - en Sjálfstæðismenn voru í þessu ráðuneyti 16 ár þar á undan. Væri því ekki nær að spyrja þá hvort þeir séu sáttir við þessa stöðu mála ?

Eflaust hefði Kristján eitthvað getað gert meira á þessum 6 mánuðum en því fer fjarri að staða samgöngumála Vestmannaeyja sé hans sök.


Bandaríkin og byssueign

Nú kemur eflaust enn ein umræðan um byssueign Bandaríkjamanna. Þegar hver sem er, meira að segja menn sem varla teljast heilir á geði, geta nálgast byssur jafnauðveldlega og að kaupa nærbuxur þá held ég að menn þurfi að endurskoða reglur um byssur og byssueign.

Það getur ekki talist eðlilegt að hræðilegir atburðir eins og þessi gerist með reglulegu millibili í sæmilega siðmenntuðu landi. Þá er eitthvað sem er ekki að ganga upp. Það er bara þannig.


mbl.is Níu létust í skotárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórleikur hjá Kristni

Flott fyrir Kristin Jakobsson að fá "stórleik", þó svo að það sé eflaust erfitt að dæma svo löngu eftir að deildin hér heima er búin. Það er auðvitað mikilvægt fyrir dómara að halda sér í leikæfingu, en hann hefur sjálfsagt fundið sér leið til að gera það.

Annars finnst mér myndin sem fylgir fréttinni svolítið fyndin. Á bágt með að trúa því að mbl.is eigi ekki nýrri mynd af Kristni, en þessi er tekin þegar Landssímadeildin var og hét - sem segir okkur að hún er tekin þegar Landssíminn var ennþá til (sem er nú svosem ekkert fyrir svo ógurlega löngu síðan) !


mbl.is Kristinn dæmir á Goodison Park
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styrk staða

Það er nokkuð ljóst að Benitez hefur styrkt stöðu sína undanfarið með sannfærandi sigrum, nú síðast í gær þegar Liverpool valtaði yfir Bolton 4-0 á heimavelli. Torres skoraði frábært mark sem sýnir það og sannar að hann er einn hæfileikaríkasti sóknarmaðurinn í deildinni, ef ekki sá hæfileikaríkasti. Hann hefur hraða, styrk og er frábær slúttari og góður skallamaður. Held að hann eigi eftir að verða einn af þeim stærstu hjá Liverpool.

Annars var það El Hadji Diouf sem átti eitt af "mómentum" leiksins í gær þegar hann aflimaði næstum því Alvaro Arbeloa með skelfilegri tæklingu. Fékk hann gult spjald að launum þar sem rautt spjald var fyllilega verðskuldað - svo segja menn að dómararnir séu hliðhollir Liverpool í tíma og ótíma...


mbl.is Torres varar við því að reka Benítez
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiðinlegt lið ?

Mínir menn með sigur á Porto í dag sem færir þá einu skrefi nær því sem virtist frekar ómögulegt fyrir ekki svo löngu síðan, þ.e. að tryggja sér sæti í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Þeir unnu góðan 4-1 sigur og eru því búnir að skora 19 mörk í síðustu sex leikjum, m.a.s. 17 mörk í síðustu 4 leikjum - geri aðrir betur og ég held að menn sem kalla þetta lið leiðnlegt í tíma og ótíma ættu nú aðeins að gæta orða sinna...


Slöpp blaðamennska, mjög slöpp !

Það er ástæða fyrir því að sumir fjölmiðlar hafa minni trúverðugleika en aðrir. Minn trúverðugleiki á blaðinu 24 stundir féll til dæmis um mörg stig þegar ég las blað dagsins, eða allavega þeirra sem skrifa íþróttir.

Þar var frétt um að búið var að draga í riðla fyrir úrslitakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu sem fram fer í sumar. Mér fannst þetta nú svolítið skrýtið því riðlakeppnin kláraðist bara á laugardaginn. Þegar ég fór að skoða hinu ætluðu riðla þá sá ég að þetta voru alls ekki riðlarnir, heldur voru þetta þeir fjórir fjögurra liða styrkleikaflokkar sem búið er að skipta liðunum í - en eitt lið í hverjum styrkleikaflokki fer svo saman í riðla og því verða til fjórir fjögurra liða riðlar.

Þannig að textinn í fréttinni -  sem fjallaði m.a. um hveru óspennandi riðlarnir væru, hvaða lið væru líklegust til að komast áfram úr riðlunum og svo framvegis - hann var í besta falli mjög vandræðalegur !


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Smári Jökull Jónsson

Höfundur

Smári Jökull Jónsson
Smári Jökull Jónsson

Starfa sem grunnskólakennari í Smáraskóla í Kópavogi auk þess að skrifa um íþróttir í Fréttablaðið af og til.

Færsluflokkar

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Myndir heima   Vikur 4 6 153
  • Fyrsti sólarhringur 114
  • Fyrsti sólarhringur 122
  • Fyrsti sólarhringur 095
  • Fyrsti sólarhringur 083

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.8.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband