Færsluflokkur: Bloggar
23.1.2009 | 23:19
Næsti formaður Sjálfstæðisflokksins
Það er forvitnilegt að pæla í þeim sem koma til greina sem næsti formaður Sjálfstæðisflokksins. Strax er búið að nefna fjóra kandídata til sögunnar, Þorgerði Katrínu varaformann, Bjarna Ben þingmann, Kristján Þór Júlíusson þingmann og oddvita í NA-kjördæmi og loks Guðlaug Þór heilbrigðisráðherra.
Þorgerður Katrín hlýtur að kanna sína stöðu, enda varaformaður og eina skrefið upp á við fyrir hana innan flokksins er að verða formaður. Hins vegar er það alveg ljóst að hún er meira til vinstri en hörðustu Sjálfstæðismenn telja eðlilegt auk þess sem hægt er að setja spurningamerki við þátt hennar og eiginmanns hennar í málefnum Kaupþings. Þá hefur hún lýst því yfir að hún sé hlynnt því að skoða ESB-aðild og það er misjafnlega vinsælt hjá bláu höndinni. Það má þó ekki afskrifa hana.
Bjarni Ben er frjálshyggjumaður út í fingurgóma og eflaust sá sem margir Sjálfstæðismenn sjá sem framtíðar formann. Hins vegar er það alveg ljóst að frjálshyggjustefnan hefur steytt á skeri og ef flokkurinn kýs sér formann sem er jafn mikill frjálshyggjumaður og Bjarni er, þá gæti það tekið tíma að fá þjóðina í lið með sér á nýjan leik. Fólkið í landinu hefur einfaldlega fengið nóg af hugmyndafærði Hannesar Hólmsteins og co. Bjarni kemur þó sterklega til greina og innan flokksins gæti skapast sæmileg sátt um hann, þó svo að stuðningsmenn Þorgerðar Katrínar gætu séð ýmislegt athugavert við hann sem formann.
Kristján Þór Júlíusson er fremur óskrifað blað í þessari baráttu. Hann var einn af oddvitum Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu kosningar, nánar tiltekið í NA-kjördæmi, en jafnframt eini oddvitinn sem ekki fékk stórt embætti eftir kosningarnar (Sturla Böðvarsson fékk reyndar "bara" embætti Forseta Alþingis en næsti maður á eftir honum í NV-kjördæmi varð ráðherra). Það er því ekki alveg ljóst hvort fólkið í innsta hring flokksins treystir honum í formannsembættið, hann er líklega ekki nógu stórt nafn á landsvísu.
Guðlaugur Þór Þórðarson er, líkt og Bjarni, mikill frjálshyggjumaður og einn af stuttbuxnadrengjunum í flokknum. Hann er ráðherra, oddviti og ef hann hyggur á enn meiri frama innan flokksins hlýtur hann að stefna á annaðhvort varaformanns- eða formannsstólinn. Hins vegar held ég að erfiðara væri að ná sátt um hann sem formann heldur en til dæmis Bjarna. Hann er þegar orðinn mjög umdeildur sem heilbrigðisráðherra og á litla möguleika á að skapa sér vinsældir meðal annarra en harðra Sjálfstæðismanna.
Svo er spurning hvort einhverjir aðrir kandídatar koma til greina. Árni Sigfússon hefur verið nefndur, Hanna Birna Kristjánsdóttir gæti hugsað sér meiri frama innan flokksins og þá má aldrei útiloka minni spámenn eins og Sigurð Kára, Guðfinnu Bjarnadóttur eða Pétur Blöndal - þó ólílklegt sé að þau hyggi á framboð.
Síðan er víst aldrei hægt að útiloka Davíð kallinn...!
Sigmundur: Tilboðið stendur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.1.2009 | 17:59
3,5 milljónir punda
Er það málið að borga 3,5 milljónir punda fyrir 31 árs gamlan framherja, sem hefur skorað 58 mörk í 300 leikjum síðan 2000.
Ef ég væri Martin O´Neill myndi ég allavega einbeita mér að því að ná mér í yngri framherja sem nýtist liðinu til lengri tíma en næstu 1-2 árin...
Heskey orðinn leikmaður Aston Villa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.1.2009 | 09:07
Léttara hjal
Er kominn með sjúklega löngun til að fara til USA. Langar ótrúlega mikið til New York og einnig til San Francisco. Ég verð alltaf jafn svekktur og þegar ég hugsa til þess að Smáraskóli fór einmitt í starfsmannaferð til San Francisco vorið 2006, eða um 3 mánuðum áður en ég hóf störf þar. Frekar svekkjandi.
En nú er bara að láta sig dreyma, skoða myndir og vona...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.1.2009 | 22:25
Geir og stjórnin
Ég held það sé nokkuð ljóst hvað gerist úr þessu. Samfylkingin getur ekki mögulega starfað áfram í ríkisstjórn eftir þessa ályktun frá félagi flokksins í Reykjavík. Vilji fundargesta var skýr. Ég held að þetta sé ágæt lausn, hafa starfhæfa ríkisstjórn fram á vor og kjósa þá og veita nýtt umboð til þess að stjórna landinu.
Annars held ég að Geir hafi vitað í hvað stefndi þegar hann fór í viðtöl bæði á RÚV og Stöð 2 fyrr í kvöld, þrátt fyrir að hafa talað eins og ekkert væri að. Hann talaði um ábyrgðarleysi ef menn myndu ganga út úr ríkisstjórnarsambandinu núna og er þar með að koma því inn í hausinn á almenningi hversu illa ígrundað það yrði af Samfylkingunni ef þeir myndu slíta stjórnarsamstarfi. Eins og virðist ætla að verða raunin.
Geir, og nú í kvöld Arnbjörg Sveinsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tala einnig um orð Ingibjargar Sólrúnar um að ekki stæði til að slíta stjórninni. Það væri samt gaman að heyra hvað Ingibjörg sjálf segir, ekki hvað aðrir segja að hún hafi sagt við þau. Þau eru allavega að reyna að láta hana líta illa út, ef fer sem fram horfir.
Við skulum leyfa fólkinu að dæma, hverjir það eru sem sýna ábyrgðina. Það verður líka forvitnilegt að sjá hvað gerist á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um helgina, sem allt er búið að vera á "hold" útaf síðustu vikur.
Samþykktu ályktun um stjórnarslit | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.1.2009 | 09:37
Mute á Agnesi
Það þyrfti að setja tappa í suma þeirra sem sífellt tjá sig í fjölmiðlum um allt og ekkert. Setja bara á "mute".
Gott dæmi um þetta er Agnes Bragadóttir sem ég er löngu kominn með nóg af. Hún er í hverri viku í öllum fjölmiðlum, oftast nær að rökræða við aðra viðmælendur og dónaskapurinn og hrokinn sem hún sýnir þeim oft á tíðum er ótrúlegur. Ef fólk lýsir skoðun sem er ekki henni að skapi þá fussar hún og sveiar og nú síðast í morgun þurfti Heimir Karlsson stjórnandi þáttarins "Í bítið" á Bylgjunni að biðja hana vinsamlegast um að blóta ekki í útvarpið eftir að hún sagði "þetta er nú meiri helvítis lygin".
Mute á Agnesi - hvernig væri að stofna Facebook hóp um það ?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.1.2009 | 21:06
Ögmundur !
Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri-Grænna, er í miklum metum hjá fjölda manns. Enda hefur hann margt gott verk unnið.
En áttar hann sig á því að um leið og hann bendir á að ríkisstjórnin sem umboðslaus og þar krefjist endurnýjunar, þá er það krafa fólksins að einnig sé stokkað upp í hans flokki. Að honum sé stokkað burt og nýju fólki gefið færi á að komast að.
Ég hef ekki mætt á mótmælin við Austurvöll, aldrei staðið til og ég býst ekki við að mæta þangað. Samt sem áður tel ég nauðsynlegt að kjósa upp á nýtt, skipta þurfi um fólk í ríkisstjórn og hjá ríkisstjórnarflokkunum. En þá er það jafnframt mín krafa að flokkar í stjórnarandstöðu stokki upp hjá sér, sjálfsögð krafa finnst mér.
Framsóknarflokkurinn er búinn að stokka upp hjá sér og á eftir að koma í ljós hversu mikil uppstokkunin í hugmyndafræðinni verður í raun og veru, menn eru ekki sammála um það.
Vinstri-Grænir verða að fylgja í kjölfarið ef taka á mark á þeim í komandi umræðu. Áttaðu þig á því Ögmundur Jónasson !
Mótmæli mega ekki snúast upp í andhverfu sína | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
20.1.2009 | 16:03
Að mæta eða mæta ekki í vinnuna
Nú segir Vísir frá því að Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður Vinstri Grænna sé meðal mótmælenda.
Fyrirgefið fáfræðina, en á hún ekki að vera inni í þinghúsinu að vinna í staðin fyrir að vera utan við þinghúsið að mótmæla ? Það hefði ég allavega haldið...
Allt á suðupunkti við Alþingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
20.1.2009 | 10:09
Hjartað i Kaká
Hjartað hjá honum hlýtur að vera ansi djúpt undir niðri, allavega tók það ansi langan tíma fyrir hann að heyra í þessu blessaða hjarta sínu. Líklega hefur hljóðið í seðlunum og klinkinu verið hærra en rödd hjartans, allavega um stundarsakir.
Þetta eru nú samt góðar fréttir, þannig að menn sjá nú að ekki er allt falt fyrir peninga.
Kaká: Hlustaði á hjarta mitt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.1.2009 | 00:34
Barack
Ég held að sjaldan hafi einn maður haft jafn gott tækifæri til að breyta einu þjóðfélagi eins og Barack Obama hefur núna. Auðvitað breytast hlutir eins og þjóðarfjármálin (sem eru í rusli), lélegt heilbrigðis- og menntakerfi og viðhorf til minnihlutahópa ekki á einni nóttu. En það að svartur maður hafi verið kjörinn forseti Bandaríkjanna vekur held ég það mikla trú og von hjá stórum hluta Bandaríkjamanna - að mörgum þeirra virðist allt mögulegt. Meira segja að bæta hluti sem þessa verulega, þannig að þeir geti talist viðunandi.
En um leið er ábyrgðin mikil og því miður verður erfitt fyrir Obama að standast þær gríðarlegu væntingar sem til hans eru gerðar. Enda held ég að enginn maður gæti staðið undir þeim væntingum. En hann hefur tækifærið til að breyta, eins og hann benti svo eftirminnilega á í slagorði sínu fyrir kosningarnar, og við skulum vona að hann nýti það vel.
Þessu skylt. Það kæmi mér mjög á óvart ef sú staða kemur upp eftir 4 ár, þegar kosið verður að nýju til embættist forseta, að engin meiriháttar tilraun hafi verið gerð til að myrða Barack Obama. Árás þar sem hann særist eða þaðan af verra.
Við skulum vona að ég hafi rangt fyrir mér hvað það varðar.
Gríðarleg öryggisgæsla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2009 | 09:28
Bensínið ?
Þar sem olíutunnan hefur lækkað um rúm 400% (ef reikningskunnátta mín svíkur mig ekki) þá fyndist manni ekki óeðlilegt að bensínið hér á landi myndi lækka eitthvað líka - þó að væri nú ekki nema fyrir hluta þeirrar tölu.
Það virðist hins vegar alltaf taka lengri tíma að líta til þróunar heimsmarkaðsverðs, þegar verðið á olíunni er að lækka en þegar það er að hækka. Merkilegt nokk...
Smá leiðrétting. Þar sem í ljós kom að reikningskunnáttan mín sveik mig, þá er komin ágætis útskýring í kommentum á stærðfræðinni hvað varðar hækkun/lækkun olíunnar
Olían í 10 dali? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 20.1.2009 kl. 00:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Um bloggið
Smári Jökull Jónsson
Færsluflokkar
Tenglar
Mínar uppáhalds
Þær síður sem ég skoða daglega
- Fótbolti.net
- Mogginn
- Vísir
- Sky Sports Íþróttafréttir erlendis
- Eyjan
- Sky News Erlendu fréttirnar
- Eyjafréttir
- Herðubreið Pólitískur fréttavefur
- Smugan Pólitískur fréttavefur í boði Vinstri-Grænna
- Liverpool
- RÚV
- Eyjar.net
- ÍBV
- AMX Pólitískur fréttavefur í boði Sjálfstæðismanna
- Liverpool á Íslandi
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar