Færsluflokkur: Bloggar

Frjálshyggjudrengurinn

Það er allavega ljóst að ef Bjarni Benediktsson verður kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins, þá dregur ekki úr frjálshyggjunni í röðum Sjálfstæðismanna.

Það ætti að gleðja forystumenn annarra flokka, því frjálshyggjustefnan hefur beðið algjört skipbrot í hremmingunum undanfarið og verður erfitt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að telja þjóðinni trú um að frjálshyggjustefnan sé sú besta fyrir þjóðina í núverandi ástandi.


mbl.is Bjarni staðfestir framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn !

Áhugaverður pistill um Framsóknarflokkinn hér, hjá Andrési Jónssyni sem eitt sinn var formaður UJ.

Annars vona ég nú að þessi ríkisstjórn fari að myndast svo það sé hægt að gera eitthvað í vanda þjóðarinnar - og svo maður þurfi ekki að hlusta á taut Sjálfstæðismanna sem tala um það í fjölmiðlum, hver á eftir öðrum að allt sé í hnút í þessum viðræðum. Pínu óskhyggja í gangi hjá þeim.

Vonandi verður þeim haldið sem lengst frá stjórnartaumum þessa lands.


Að átta sig ekki á hlutunum

Hvenær ætla Sjálfstæðismenn að átta sig á hinu augljósa ?

Landið fer ekki í þrot þó að þeir séu ekki við stjórnvölinn, það fór einmitt í þrot þegar þeir voru við stjórnvölinn. Samt láta þeir eins og þeir séu ómissandi.

ÞIÐ ERUÐ EKKI ÓMISSANDI

Svo á eftir að heyrast í vor fyrir kosningar hversu ömurleg fjármálastjórn var hjá þessari 100 daga vinstri stjórn, alveg búnir að gleyma því hverjir stjórnuðu 17 árin þar á undan. Varla búast menn við kraftaverkum á 100 dögum. Ég hef hins vegar trú á að stjórnin sem mun taka við, að hún grípi til aðgerða sem koma til góða - hvort sem það verður á þessum 100 dögum eða á næstu 300.

Þó svo að ég sé nú ekkert hrifinn af Steingrími J sem fjármálaráðherra (eins og all stefnir í) þá er það allavega ekki verra en það sem við höfðum.


Einar K og hvalveiðar

Burt séð frá því hvort menn eru hlynntur því að veiða hval eða ekki, er það eðlilegt að ráðherra stórauki veiðiheimildir á hval til næstu 5 ára, nokkrum dögum áður en hann fer úr embætti ?

Þetta eru vægast sagt stórundarleg vinnubrögð og eiginlega siðlaus. Svo var bráðfyndið að heyra Jón Gunnarsson þingmann Sjálfstæðisflokksins (sem notaði einmitt merki Landsbjargar í prófkjörsbaráttu hér um árið) tala um að það væri eftir Samfylkingunni ef flokkurinn myndi draga þessa ákvörðun til baka. Honum finnst þessi ákvörðun starfandi sjávarútvegsráðherra greinilega alveg í lagi.

Ég held hins vegar að það sé nokkuð ljóst að þessir ágætu herramenn, þeir eru ekki í lagi.


mbl.is Hvalveiðum ætlað að tefja ESB-ferli?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spunavélin komin í gang

Spunavélin í Valhöll er komin í gang enda ekki langur tími til kosninga. Sjálfstæðisflokkurninn gengur um eins og sært dýr en virðist samt ætla að bíta frá sér. Hvar sem maður heyrir í Sjálfstæðismanni í fjölmiðlum, hvort sem það er í sjónvarpi, útvarpi eða á netmiðlum þá tala menn um tætta Samfylkingu, klofning þar á meðal og að Ingibjörg Sólrún hafi ekkert ráðið við klíkurnar innan flokksins. Greinilegt að forystan er búin að leggja línurnar hvað þetta verðar. Svo á auðvitað að taka forsetann í gegn í leiðinni.

Agnes Bragadóttir blaðamaður á Morgunblaðinu sýndi þetta mjög greinilega í morgun þegar hún var í vikulegu spjalli sínu á Bylgjunni ásamt Björgu Evu Erlendsdóttur. Annars er það alveg makalaust hversu langt Agnes gengur í máli sínu. Dónaskapurinn, hrokinn og virðingarleysið er algjört. Ég átti hreinlega ekki orð þegar ég var í bílnum á leið í vinnu í morgun. Hún fór svo langt út fyrir öll mörk að það er engu lagi líkt.

Annars stóð hún á gati þegar umræðan um forsetann fór í gagn. Agnes fór mikinn og sagði að "puntudúkkan á Bessastöðum" ætti nú ekki að skipta sér af þessum málum og hvað þá leggja til þessi fjögur frægu atriði sem hann minntist á í gær. Í leiðara Morgunblaðsins sögðu stjórnendur þáttarins að fólk væri hvatt til að láta orð Ólafs sem vind um eyru þjóta og jafnframt spurðu þau Agnesi hvort ástæðan væri ekki einfaldlega sú að það væri Ólafur sem talaði, en ekki vegna þess að lítið vit væri í því sem sagt væri.

Þá gat hún ekkert sagt. Hún semsagt viðurkenndi það óbeint að þó svo að mikið vit væri í því sem forsetinn sagði og að það væri m.a. beintengt við kröfur fólksins síðustu vikur, þá ætti fólk ekki að hlusta vegna þess að það væri Ólafur Ragnar sem væri að tala.

Segir þetta ekki ýmislegt um hugsanagang spunavélarinnar í Valhöll ? Gefum þeim frí !


mbl.is „Samfylkingin bugaðist"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnarskráin

24. grein

Forseti lýðveldisins getur rofið Alþingi, og skal þá stofnað til nýrra kosninga, áður en 45 dagar eru liðnir frá því er gert var kunnugt um þingrofið, enda komi Alþingi saman eigi síðar en tíu vikum eftir að það var rofið. Alþingismenn skulu halda umboði sínu til kjördags.

Ég skil þetta þannig að forsetinn geti rofið þing, en ekki forsætisráðherra. Vinsamlegast leiðréttið ef ég er að "misskilja þetta stórkostlega" eins og sumir hafa komist að orði.


mbl.is Stórkostlegur misskilningur forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrgðin

Ábyrgðin er allra, það held ég að menn séu sammála um. Mér er það mjög til efs að Samfylkingin hafi verið með þá ófrávíkjanlegu kröfu að flokkurinn fengi forsætisráðherraembættið. Það væri allavega mikill barnaskapur að koma með þá kröfu og víkja ekki frá henni - frekar slíta stjórninni.

Þá finnst mér trúlegra að Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið í vandræðum með að víkja Davíð úr Seðlabankanum. Það væri þá líka ótrúleg framkoma af þeirra hálfu að slíta samstarfinu eingöngu vegna þess.

Það er allavega nokkuð ljóst að skilnaðurinn verður ekki í góðu, nú þegar eru báðir aðilar farnir að kasta sprengjum sín á milli.

Gósentíð fyrir fréttamenn á meðan almenningur bíður og bíður.


mbl.is Ásaka hvert annað um hroka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framhaldið

Þá er stjórnin fallin og framhaldið óljóst. Mitt mat er það að fram að kosningum þarf að mynda stjórn þar sem allir flokkar koma að málum, eða þá utanþingsstjórn sem myndi starfa fram að kosningum.

Það er ekkert vit í því að mynda óvinsæla minnihlutastjórn með tveimur eða þremur flokkum sem myndi starfa í 3-4 mánuði. Sérstaklega ekki ef það þýðir að Steingrímur J kemst í einhverja lykilstöðu eins og fjármálaráðuneytið. Þá fyrst fer ég að huga að því að taka mína peninga út úr bankanum og setja undir koddann.

Það er allavega ljóst að alvarleg stjórnarkreppa er skollin á og lausn á henni fæst ekki fyrr en við kjósum á ný. Þá fyrst verður hægt að mynda starfhæfa stjórn hér á landi.

Það er einnig ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn þarf á fríi að halda og vonandi veitir fólkið í landinu honum það frí sem hann þarf.


mbl.is Stjórnarsamstarfi lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjármálaráðherra

Æi nei, ég ætla nú rétt að vona að þetta sé ekki rétt að Steingrímur J verði næsti fjármálaráðherra. Það er held ég ekki mikið skárra en það sem við höfum núna...

Vissulega er kominn tími á frí hjá íhaldinu, en ég hefði nú haldið að það væri bara betra að hafa núverandi stjórn fram að kosningum - eða þá mynda þjóðstjórn allra flokka.

Sjáum hvað setur þegar líður á daginn


Hmmm...

Um daginn sagðist Wenger ekki taka undir orð Benitez, við mikla gleði Man Utd manna, en nú segist hann vera sammála honum.

Spurning hvað honum gengur til með þessu ?


mbl.is Wenger segir Manchester fá sérmeðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Smári Jökull Jónsson

Höfundur

Smári Jökull Jónsson
Smári Jökull Jónsson

Starfa sem grunnskólakennari í Smáraskóla í Kópavogi auk þess að skrifa um íþróttir í Fréttablaðið af og til.

Færsluflokkar

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Myndir heima   Vikur 4 6 153
  • Fyrsti sólarhringur 114
  • Fyrsti sólarhringur 122
  • Fyrsti sólarhringur 095
  • Fyrsti sólarhringur 083

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband