Færsluflokkur: Bloggar

Áhugaverð grein Sigurðar Einarssonar í Fbl.

Sigurður Einarsson, fyrrverandi yfirmaður Kaupþings, skrifar áhugaverða grein í Fréttablaðið í dag um þátt Davíðs Oddssonar í bankahruninu. Þar tekur hann fram nokkur atriði sem varðar ábyrgð Davíðs og rekur orð Kjartans Gunnarssonar þar með ofan í hann aftur, en Kjartan skrifaði einmitt grein í Fréttablaðið fyrir stuttu síðan þar sem hann segir ekki hægt að reka Davíð Oddsson úr Seðlabankanum þar sem hann hafi ekkert gert rangt í störfum sínum.

Eitt atriði fannst mér mjög áhugavert en það var varðandi trúnað Davíðs samkvæmt viðmælendum sínum. Sigurður sagði að þeim í Kaupþing var hætt að finnast það tilviljun að daginn eftir trúnaðarsamtöl við seðlabankastjóra, þá birtust fréttir í Mogganum um það sem um var rætt og þá undir nafninu Agnes Bragadóttir.


mbl.is Deilur á Íslandi valda skaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilviljun?

Ætli það sé tilviljun að sama dag og Geir H. Haarde lætur hafa eftir sér að forsetinn hafi vitað af komandi stjórnarslitum áður en þau voru tilkynnt, þá segir Sturla Böðvarsson að "kosningastjórinn í baráttunni um stól forseta Alþingis" hafi verið bóndinn á Bessastöðum?

Nei, það held ég að sé ekki tilviljun. Sjálfstæðismenn reyna nú hvað sem þeir geta til að líta vel út í augum almennings og nú sjá þeir þann kost vænstan að reyna að tengja forsetann við núverandi ríkisstjórn og gera hana og hann sjálfan þar með ótrúverðugan.

Að líta í sinn eigin barm, nei það kemur auðvitað ekki til greina.


mbl.is Sturla og Herdís hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sóknarleikurinn

Miðað við hvað mínir menn voru hugmyndasnauðir í gærkvöldi eftir að þeir misstu fyrirliðann útaf, þá er maður ekkert alltof bjartsýnn fyrir þessar þrjár vikur sem Gerrard verður frá.

Vonandi bara að hann verði kominn í gang fyrir Real Madrid leikina


mbl.is Gerrard frá keppni í þrjár vikur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjáin

Er það ekki einmitt útaf rifrildum um svona tittlingaskít sem þessi umtalaða gjá, sem margir vilija meina að sé á milli landsmanna og þingsins, er tilkomin ?

Landsmenn eru ekki mikið að spá í því hver er Forseti hæstvirts Alþingis! Fólkið vill aðgerðir og það strax, ekki innantómt rifrildi um persónur og valdastöður.

Ég hefði reyndar haldið að mjög eðlilegt væri að forseti Alþingis væri valinn upp á nýtt þegar ný ríkisstjórn tæki við - ég allavega held að Sjálfstæðisflokkurinn hefði farið nákvæmlega eins að ef þeir væru í meirihluta.

En þetta er ekki rétti tíminn til að rífast um þessa hluti.


mbl.is Mögnuð fráhvarfseinkenni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aftur og nýbúinn

Liverpool og Everton mætast í þriðja skiptið á 2 vikum núna í kvöld. Nú er það re-play leikur í bikarnum, en fyrri leiknum lauk með jafntefli. Alltaf gaman að þessum nágrannaleikjum og ljóst að ekkert verður gefið eftir - enda sæti í næstu umferð bikarsins í húfi !

Ekki verra að rifja þetta upp af þessu tilefni. Einn magnaðasti bikarúrslitaleikur frá upphafi - með einu magnaðasta marki Steven Gerrard fyrir Liverpool, og þar er af mörgu að taka.


Ábyrg stjórnarandstaða

Ég er farinn að hafa áhyggjur af sjálfum mér, ég blogga varla nema það sé um Sjálfstæðisflokkinn!

En ég hlustaði á Bítið í morgun og fór þá að velta því fyrir mér hvað fælist í ábyrgri stjórnarandstöðu. Nú er stjórn við völd sem mun einungis starfa í um 80 daga, hennar bíða mörg brýn verkefni og ljóst er að hafa þarf hraðar hendur. Stjórnarsáttmálinn er mjög takmarkaður, ákveðið var að bíða með mörg stór mál sem VG og S eru ekki endilega sammála um (t.d. ESB), þar sem það er deginum ljósara að ekki myndi vinnast tími til að afgreiða þau mál að fullu.

Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, talaði um í gær að flokkurinn ætlaði sér að vera ábyrgur í stjórnarandstöðu, gagnrýna það sem þyrfti að gagnrýna og ekki tefja afgreiðslu góðra mála. Illugi hefur oftast verið málefnalegur í sínu tali og því ástæða til að hlusta á hann.

Því miður virðast ekki allir samflokksmenn hans vera á sama máli. Síðustu daga hafa margir Sjálfstæðismenn gert allt sem þeir geta til að gera nýjan meirihluta ótrúverðugan, tala um sundrungu þeirra á milli og benda á mál sem vitað er að hinn nýi meirihluti er ekki búinn að tala um (og ætlar ekki að taka á vegna takmarkaðs vinnutíma) og tala um það sem dæmi um að nýr meirihluti geti ekki unnið saman.

Er þetta ábyrgð? Væri ekki nær að gefa nýjum meirihluta sæmilegan vinnufrið, beina gagnrýni sinni að þeim málum sem hann ætlar að fjalla um og taka á - en ekki einblína á önnur "minni" mál sem vitað er að verður tekist á um í kosningabaráttu og sú ríkisstjórn sem tekur við eftir 25.apríl mun sjá um að leiða til lykta.

Sjáum hversu ábyrgir þeir eru.


XD og XB

Ég er ekki að djóka, Sjálfstæðisflokkurinn er strax farinn að gera hosur sínar grænar fyrir Framsóknarflokknum !

Það kemur svo í ljós eftir kosningar hvort Framsóknarmenn ætla að vera menn og skilja Sjálfstæðisflokkinn eftir á Bitrustöðum, eða mýs og hleypa þeim aftur í ríkisstjórn.

Miðað við hvernig Framsóknarflokkurinn hefur starfað undanfarin ár, til dæmis í meirihlutamyndunum í borginni, þá er maður temmilega bjartsýnn.


Ulla bjakk

Fyrirgefið meðan ég æli ! Athugið þennan pistil og þið sjáið af hverju...

Gísli Marteinn getur náttúrulega ekki ímyndað sér að Davíð Oddsson geri mistök eða eitthvað slæmt yfirhöfuð !


Spunavélin á fullu

Ég held án djóks að spunavélin í Valhöll hafi aldrei verið með jafn marga anga úti og núna á hinum síðustu og verstu tímum flokksins. Þeir reyna allt til að slá ryki í augu fólks, sem ég vona að sjái í gegnum þennan brjóstumkennanlega leik Íhaldsins.

Gott dæmi um þetta er frumvarpið sem þeir ætla að leggja fram á miðvikudag frumvarp um greiðsluaðlögun, sem samkvæmt varaformanninum "löngu tilbúið til afgreiðslu frá þingflokknum". Fyrst frumvarpið var löngu tilbúið, af hverju var ekki búið að leggja það fram fyrir löngu síðan ? Varla hefur staðið á Samfylkingunni, því þá væru þeir varla að leggja fram frumvarpið núna !

Annað dæmi um þetta er viðhorf þeirra til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Geir H. Haarde talaði um mikilvægi þess að fylgja áætlunum sjóðsins í hvívetna, eitthvað sem núverandi ríkisstjórn ætlar einnig að gera. AGS tók m.a. þá ákvörðun núna fyrir helgi að lækka ekki stýrivexti (ég vil taka það fram að ég hef ekkert vit á þessu stýrivaxtadæmi) og stigu hinir aldræmdu bankastjórar Seðlabankans þá fram og sögðu að þeir hefðu nú lækkað stýrivexti ef þeir hefðu fengið að ráða. Þá er allt í einu komið annað hljóð í skrokkinn hjá Sjálfstæðismönnum, auðvitað hefði átt að lækka stýrivexti og ekki hlusta á þetta bull hjá AGS.

Er þetta lið trúverðugt ?


mbl.is Hugmyndafræðin var röng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Liverpool staðfestir viðræður

Þá eru mínir menn búnir að staðfesta það á opinberri heimasíðu þeirra að Robbie Keane hafi fengið leyfi þeirra til að semja við Tottenham um kaup og kjör, vegna hugsanlegrar endurkomu hans til Spurs.

Ef Liverpool getur fengið þá upphæð sem hefur verið í umræðunni, þ.e. um 15 milljónir punda, þá held ég að þeir ættu að grípa gæsina. Keane virðist ekki ætla að smella inn í þetta blessaða lið.

En ef af verður, þá er nokkuð ljóst að mínir menn þurfa að versla sér framherja !


mbl.is Tottenham með nýtt tilboð í Keane
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Smári Jökull Jónsson

Höfundur

Smári Jökull Jónsson
Smári Jökull Jónsson

Starfa sem grunnskólakennari í Smáraskóla í Kópavogi auk þess að skrifa um íþróttir í Fréttablaðið af og til.

Færsluflokkar

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Myndir heima   Vikur 4 6 153
  • Fyrsti sólarhringur 114
  • Fyrsti sólarhringur 122
  • Fyrsti sólarhringur 095
  • Fyrsti sólarhringur 083

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband