Færsluflokkur: Bloggar
23.2.2009 | 16:32
Framsókn og siðareglur
Beðið eftir siðareglum Framsóknarflokksins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
23.2.2009 | 13:53
Íhaldið og Framsókn
Mér finnst það sífellt ljósara með hverjum degi sem líður að Sjálfstæðisflokkur ætlar að gera allt sem hann getur til að mynda ríkisstjórn með Framsóknarflokknum eftir kosningar. Kemur svosem ekkert á óvart. Varla fara VG og S í stjórn með þeim og þá eru nú ekki margir eftir.
En mér finnst þetta snúast um heilindi Framsóknarflokksins, sem því miður ekki hefur farið mikið fyrir síðustu misserin. Því er maður ekkert sérstaklega bjartsýnn á að þeir hafi það sterkt bein í nefinu til að segja nei við íhaldinu þegar á hólminn verður komið.
Framsókn og íhaldið aftur - nei takk !
Vilja fresta seðlabankaumræðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2009 | 19:35
Liverpool og Benitez
Þó svo að Liverpool hafi oftast á síðustu árum verið meira en 7 stigum á eftir toppliðinu á þessum tímapunkti, þá er svekkelsið enn meira núna. Þeir voru efstir, voru í ágætri stöðu en hafa farið mjög illa að ráði sínu. Auðvitað er allt opið ennþá, en miðað við hvernig Manchester United er að spila þessa dagana og á meðan Liverpool klárar ekki leikina, þá sér maður mína menn ekki nálgast Englandsmeistarana enn frekar.
Menn hljóta að spyrja um stöðu Benitez. Ég held hann þurfi að vinna annað hvort Meistaradeildina eða Englandsmeistaratitilinn ef hann ætlar að halda stöðu sinni. Jafnvel gæti sigur í Meistaradeild ekki verið nóg. Hins vegar held ég að það væru mistök að reka hann núna, held það sé liðinu fyrir bestu að hann klári tímabilið.
Leikur gegn Real Madrid á miðvikudag. Real menn á miklu skriði og verða illviðráðanlegir á heimavelli. Þó svo að ég hafi meiri trú á að Liverpool fari áfram heldur en Real, þá er ég ekki bjartsýnn fyrir leikinn á miðvikudag. Reyndar held ég að þessi 16-liða úrslit verði erfiðari fyrir ensku liðin en menn halda. Manchester United, Arsenal, Liverpool og Chelsea eiga öll eftir að lenda í vandræðum og ég held að a.m.k. eitt enskt lið, jafnvel tvö detti strax út í 16-liða úrslitum.
Enn eitt jafnteflið hjá Liverpool á Anfield Road | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.2.2009 | 12:13
Bandaríkin og byssur
Hef áður skrifað um þessi vopnamál í Bandaríkjunum, líklegast eftir svipaðan harmleik og greint er frá hér. Auðvitað skelfilegt að hugsa til þess að 11 ára gamall drengur geti gert svona lagað, látið svo eins og ekkert hafi í skorist og í þokkabót logið til um málið.
Annað sem stingur mann sérstaklega við lestur þessarar fréttar er að byssan sem hann notaði til að fremja morðið hafi verið ætluð fyrir börn og ekki nauðsynlegt að skrá. Hvað í ósköpunum hafa börn að gera við byssur?
Bandaríkjamenn þurfa alvarlega að skoða þessa meingölluðu vopnalöggjöf sem er við lýði hjá þeim. Það er auðvitað ekki eðlilegt að næstum sé auðveldara að útvega sér skotvopni en sælgæti.
11 ára drengur ákærður fyrir morð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.2.2009 | 13:26
Frííííí !
Vetrarfrí framundan. Ekki laust við að maður sé búinn að telja niður dagana undanfarið, sérstaklega eftir miklar annir í þorraþema hérna í skólanum. Verður ljúft að fá tveggja daga frí...
Annars er maður búinn að taka sig til og panta far til Eyja fyrir Þjóðhátíð, ekki seinna vænna!
Ætla ekki annars allir menn með viti að skella sér á Þjóðhátíð? Ekki veitir af að hafa eitthvað að hlakka til á þessum síðustu og verstu...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.2.2009 | 13:23
Magnaður andskoti !
Þessi frétt er auðvitað brandari útaf fyrir sig!
Auðvitað er engin ástæða til að biðjast afsökunar eftir að maður fullyrðir að forsætisráðherra ljúgi í ræðustóli Alþingis.
Allavega ekki ef maður er Sjálfstæðismaður, fyrrum forsætisráðherra og heitir Geir Hilmar Haarde
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2009 | 11:06
Gegn Árnunum
Ragnheiður stefnir á 1. sætið í Suðurkjördæmi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2009 | 10:26
Flott mál!
Jórunn vill 2. sæti VG í Suðurkjördæmi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.2.2009 | 15:27
Úff...
Mætti halda að það væri að koma prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum. Allavega er Ármann Kr. Ólafsson allt í einu farinn að tjá sig um mál líðandi stundar, sem hann hefði nú betur sleppt.
Hann, líkt og aðrir félagar hans, eru greinilega nýbúnir að læra ný orð. Frasar eins og "að bola út", "ýta úr starfi" og "pólitískar hreinsanir" hafa heyrst á 5 mínútna fresti úr ræðustóli Alþingis undanfarið en nú er manni öllum lokið. Man Ármann ekki að það var í tíð síðustu stjórnar, sem hann átti aðild að, sem ákveðið var að auglýsa eftir nýjum bankastjórum ríkisbankanna?
Svona lýðskrum hjá Ármanni hlýtur fólk að sjá í gegnum. Hann reynir að þyrla upp eins miklu ryki og hann getur, allt til að ríkisstjórnin líti sem verst út en tekst ekki betur til.
Hvernig væri nú að menn eins og Ármann, færu að vinna vinnuna sína, rýna til gagns en ekki ógagns og koma frekar með hugmyndir sem gætu hjálpað þjóðinni út úr þeim ógöngum sem hún er komin í.
Landsbankinn stjórnlaus? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.2.2009 | 21:57
Ég vildi óska...
...að ég væri staddur heima í Eyjum núna á borgarafundinum þar sem Kristján Möller er staddur. Sá fær örugglega að heyra það - enda ærin ástæða til !
Um leið og ég "lýsi yfir skandali" hvað þetta mál varðar, þá hvet ég Möllerinn til að ræða við sína undirmenn hjá Vegagerðinni með það í huga að endurskoða þessa ákvörðun.
12% dýrara að fara í Herjólf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
Smári Jökull Jónsson
Færsluflokkar
Tenglar
Mínar uppáhalds
Þær síður sem ég skoða daglega
- Fótbolti.net
- Mogginn
- Vísir
- Sky Sports Íþróttafréttir erlendis
- Eyjan
- Sky News Erlendu fréttirnar
- Eyjafréttir
- Herðubreið Pólitískur fréttavefur
- Smugan Pólitískur fréttavefur í boði Vinstri-Grænna
- Liverpool
- RÚV
- Eyjar.net
- ÍBV
- AMX Pólitískur fréttavefur í boði Sjálfstæðismanna
- Liverpool á Íslandi
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar