Farinn

Farinn í Reykjaskóla, verð þar í viku ásamt yndislegu börnunum mínum úr Smáraskóla.

Annars er nú varla hægt að yfirgefa bloggheiminn án þess að minnast á lýsingu aldarinnar sem Adolf Ingi Erlingsson og félagi hans Ólafur Björn Lárusson áttu í gær þegar þeir lýstu leik Ciudad Real og Kiel í úrslitum meistaradeildarinnar í handknattleik.

Þá töluðu þeir í sí og æ um leikmann í liði Ciudad sem þeir töldu fyrir víst að hefði verið inná í upphafi leiks. Undruðu þeir sig mikið á því af hverju hann væri ekki lengur inni á vellinum því hann væri nú markahæsti leikmaður liðsins á tímabilnu og næði einstaklega vel saman við Ólaf Stefánsson. Þessi leikmaður fór frá Ciudad fyrir tímabilið og hefur því ekki leikið með þeim í vetur, var því ekki á vellinum í upphafi leiks hvað þá að hann sé markahæsti leikmaður liðsins í vetur.

Einnig minntust þeir á annan leikmann Ciudad sem þeir vonuðust til að sjá fljótlega inná þar sem hann væri lykilmaður liðsins og væri búinn að spila mjög vel í vetur. Þessi leikmaður er einmitt búinn að vera meiddur núna í lengri tíma. Auk þess þekktu þeir ekki einn af frægari leikmönnum liðsins.

Á ekki að vera hægt að gera þá kröfu að menn sem hafa það að atvinnu að lýsa svona leikjum, að þeir undirbúi sig fyrir leiki - allavega pínulítið ?


Þjóðhátíð !

Páll Óskar verður í Dalnum í ár ! Allavega samkvæmt Myspace síðunni hans. Honum tekst örugglega að fá fólkið í stuð eins og honum einum er lagið. Verst að ég á ekki eftir að heyra í drengnum þar sem ég verð að öllum líkindum ekki staddur í Herjólfsdal á sama tíma. Miðað við hvernig stemmningin er hjá mér núna þá verður örugglega frekar erfitt ástandið þegar loksins kemur að þessu - hugsa að ég slökkvi bara á símanum yfir verslunarmannahelgina !

Annars vona ég bara innilega að þjóðhátíðarnefnd eigi ekki eftir að gera mér enn erfiðara fyrir með því að ráða skemmtikrafta eins og Nýdönsk eða Sálina. Þá yrði ég sko ekki sáttur...


Spútnikliðið

Enginn vafi á því að mínir menn í New Orleans Hornets eru spútniklið ársins í NBA körfunni. Byron Scott, hinn gamalkunni leikamaður LA Lakers, er nú verandi þjálfari og var kjörinn þjálfari ársins nú fyrir skömmu. Chris Paul hefur verið að spila frábærlega í vetur, sérstaklega nú í úrslitakeppninni og hver veit nema hann leiði liðið til frekari metorða. Þeir allavega tóku Spurs létt í nótt og eru til alls líklegir.

New Orleans Hornets (áður Charlotte Hornets) hafa verið mitt lið síðan Larry Johnson, Alonzo Mourning og Mugsy Bogues voru aðalmenn liðsins. Þar sem þeir voru sjaldan í baráttu á toppnum þá átti maður svona lið til vara en nú er engin þörf á því. New Orleans Hornets eru komnir til að vera !


mbl.is NBA: Meistararnir steinlágu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stress hress press

Shitt fokk shitt hvað ég er nervös fyrir leikinn í kvöld. Vonandi að maður gargi "Moscow baby" klukkan 20:36 í kvöld - eða 21:17 ef leikurinn fer í vítaspyrnukeppni eins og ég held...

Væl

Wenger hefur oft verið þekktur fyrir væl eftir leiki. Það er alþekkt. Held samt að Alex Ferguson hafi toppað allt þegar hann var í viðtölum eftir Chelsea leikinn. Eins og Óli Kristjáns sagði í 4-4-2 (og hann er nota bene Man Utd maður) : Ferguson tók bara Wenger-inn á þetta.

Komment eins og "maður dæmir ekki víti á brot eins og þetta í svona mikilvægum leik" og "aðstoðardómarinn hefði átt að sjá að boltinn var hvort sem er á leið til Ferdinand" eru án efa einhver vitlausustu komment sem þjálfari hefur látið út úr sér. Sé litið til reynslu Ferguson þá er þetta ennþá fáránlegra.

Sérstaklega með tilliti til þess að þetta var víti, og ekkert annað.


Mest gay ?

Ég held að það sé hægt að fullyrða að auglýsingin með Arnari Grant og Ívari Guðmunds að hoppa um í sjónum saman, sé mest gay auglýsing sem framleidd hefur verið fyrir íslenskt sjónvarp.


Jákvætt

Þá er maður búinn að kynna sér samninginn, allavega svona nokkuð vel. Held að við getum bara nokkuð vel við unað. Langflestir innan félagsins eru að hækka um 18-23% sem er jákvætt, held að þeir sem hafi óskað sér eitthvað mikið umfram það hafi verið full bjartsýnir. Þarf líka að hafa í huga að öll þessi hækkun kemur til framkvæmda á einu ári og þá verður samið upp á nýtt, væntanlega meiri hækkun.

Einnig jákvætt að einna best er gert fyrir unga kennara, hóp sem hefur einna mest setið eftir. Ég mun allavega segja já fyrir mína parta, vonandi að fleiri geri það.


mbl.is Laun grunnskólakennara hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óhugnalegt

Það er óhugnalegt að hugsa til þess að beitt sé táragasi á sárafáa friðsamlega mótmælendur hér á Íslandi. Það væri gaman að sjá hvernig Björn "Die-Hard" Bjarnason myndi bregðast við ef alvöru uppþot yrði ? Myndi hann bara senda kjarnorkusprengju á liðið - eða jafnvel bara leyniskyttur ?

Finnst ykkur þetta eðlileg viðbrögð hjá yfirvaldinu ?


mbl.is Lögregla beitir táragasi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vel hægt

Liverpool þurfa ekki nema eitt mark á Stamford bridge til að koma sér aftur inn í einvígið. Verð samt að viðurkenna að þetta lítur ekki vel út, en þetta er vel hægt ! Chelsea hafa ekki verið mjög sannfærandi undanfarið og þeir eiga erfiðan leik um helgina. Ég get nú ekki verið sammála Lampard og stjóranum Avram Grant þegar þeir segja að þeir hafi átt jafnteflið skilið - mér fannst þeir bara arfaslakir og Liverpool hefði frekar átt skilið að vinna 2-0 en að leikurinn færi í jafntefli...
mbl.is Benítez: Gríðarleg vonbrigði en við eru færir um að sigra á Stamford Bridge
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nokkrar staðreyndir um leikinn í kvöld...

...dómarinn var ömurlegur, kom niður á bæði liðum þar sem hann stoppaði leikinn í sífellu með því að dæma fáránlegar aukaspyrnur

...Liverpool hefði átt að fá víti þegar Ballack tók hann með hendi

...Drogba hefði getað fengið víti í fyrri hálfleik, held samt að Carragher hafi farið í boltann

...jafntefli eru ótrúlega ósanngjörn úrslit þar sem Chelsea leikmennirnir voru arfaslakir nær allan leikinn

...Riise er ömurlegur varnarmaður, og VAR ágætur sóknarmaður - áhersla á VAR

...held að Riise hafi tryggt Chelsea sæti í úrslitum með þessu sjálfsmarki - endar 0-0 eða 1-0 á Stamford Bridge


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Smári Jökull Jónsson

Höfundur

Smári Jökull Jónsson
Smári Jökull Jónsson

Starfa sem grunnskólakennari í Smáraskóla í Kópavogi auk þess að skrifa um íþróttir í Fréttablaðið af og til.

Færsluflokkar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Myndir heima   Vikur 4 6 153
  • Fyrsti sólarhringur 114
  • Fyrsti sólarhringur 122
  • Fyrsti sólarhringur 095
  • Fyrsti sólarhringur 083

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.9.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 1033

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband